Íslenska bílaöldin
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2003 | - | 7.225 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2003 | - | 7.225 kr. |
Um bókina
Menningarsaga bílsins á Íslandi er efni Íslensku bílaaldarinnar eftir Örn Sigurðsson og Ingiberg Bjarnason. Í þessari bók er fjallað um litríka samleið Íslendinga og þarfasta þjóns síðustu aldar.
Bókin rekur á skemmtilegan hátt sögu bílsins á Íslandi og tengsl hans við þjóðina, jafnt á vegum sem vegleysum. Greint er frá ómældum erfiðleikum í byrjun aldarinnar, dekkjahallæri, höftum og viðreisn, happdrættisbílum jafnt sem snjóbílum. Sagt er frá séríslenskri bílasmíði, njósnabílum og öðru merkilegu sem fáir hafa vitað um hingað til, en á eflaust eftir að koma mörgum á óvart.
Bókin er um 300 blaðsíður að lengd í stóru broti, ríkulega myndskreytt, með yfir 1000 ljósmyndum, auglýsingum og blaðaúrklippum frá liðinni öld, sem allir sannir bílaáhugamenn minnast með söknuði, en fá nú kærkomið tækifæri til að endurupplifa í glæsilegri bók sem er sannkallaður ljósmyndafjársjóður.