Íslandslitir
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2002 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2002 | 990 kr. |
Um bókina
JPV ÚTGÁFA hefur sent frá sér bókina Íslandslitir með ljósmyndum eftir Thorsten Henn. Sigur Rós skrifar formála.
Í eftirmála segir Thorsten: „Í þessari bók hef ég leitast við að sýna fegurð Íslands frá öðru sjónarhorni en áður hefur verið gert. Í stað þess að mynda þekkt náttúrufyrirbæri og fræga staði hef ég lagt megináherslu á að finna þá liti sem í mínum huga endurspegla Ísland og um leið að sýna landið í nýju ljósi.“
Sigur Rós segir í formála: „Kannski erum við Íslendingar hættir að sjá fegurðina sem er allt í kringum okkur ... Og kannski þarf einmitt „útlensk augu“ til að koma auga á fegurðina ... kannski þarf einmitt Þjóðverja til að koma auga á það sem við Íslendingar erum hættir að sjá og þar er Thorsten líklega rétti maðurinn.“
Bókin kemur út á fjórum tungumálum: íslensku, ensku, frönsku og þýsku. Mjög hefur verið til hennar vandað og óhætt að segja að hún sé einhver glæsilegasta ljósmyndabók sem út hefur komið hér á landi. Þór Ingólfsson hannaði bókina. GPS-staðarákvarðanir fylgja hverri mynd.
Anna Yates þýddi á ensku, Catherine Eyjólfsson á frönsku og Coletta Burling á þýsku.