Ísland í aldanna rás: 1951-1975
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2000 | 4.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2000 | 4.990 kr. |
Um bókina
Ísland í aldanna rás 1951-1975 er annað bindi í bókaflokknum um sögu Íslendinga á 20. öld og fjallar um tímabil sem var afar viðburðaríkt í sögu þjóðarinnar. Fyrsta bindið, sem kom út fyrir jólin 2000, hlaut fádæma góðar móttökur og seldist upp á svipstundu.
Bókin er í stóru broti með vel á annað þúsund ljósmynda og skýringarkorta. Ítarleg upptalning er á atburðum hvers árs og nokkrum helstu viðburðum gerð sérstök skil. Þar er stuðst við nýjustu rannsóknir fræðimanna en sagan jafnframt sögð á líflegri og tilþrifameiri hátt en við eigum að venjast.
Stjórnmálalífinu eru gerð góð skil og með aðstoð sérfræðinga er fjallað á greinargóðan og aðgengilegan hátt um fjölmörg svið þjóðlífsins – efnahagsmál, atvinnumál, menningu og listir, dægurmenningu og hvaðeina sem nöfnum tjáir að nefna. En þar með er ekki öll sagan sögð.
Á sinn sérstæða hátt fjallar Illugi einnig um líf fólksins í landinu, gleði þess og sorgir, áhugamál og argaþras, hetjuskap og fláræði. Hann greinir frá hörmulegum slysum, hryllilegum glæpum, fáránlegum uppákomum og hlægilegum meinlokum sem gerir okkur Íslendinga einstaka meðal þjóða.