Ísland í aldanna rás, 18. öldin
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2009 | 584 | 4.990 kr. |
Ísland í aldanna rás, 18. öldin
4.990 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2009 | 584 | 4.990 kr. |
Um bókina
Í bókinni er sagan rakin ár frá ári í liprum og fræðandi texta. Fjöldi sérfræðinga ritar yfirlitsgreinar um margvísleg efni og hundruð mynda gera verkið einstaklega lifandi og aðgengilegt. Bók þessi opnar lesendum innsýn í horfinn tíma sem mótaði menningu okkar á margan hátt.
Greint er frá stórtíðindum jafnt sem hversdagslegri viðburðum, ýmsum furðum og undarlegum uppátækjum, mannfólki, skepnum og náttúru. Einnig er sagt frá menningu og listum, baráttunni við fátækt og hungur, sérkennilegum skoðunum og deilum. Í upphafi hvers árs er atburðaannáll auk veðurlýsingar ársins. Einnig er gerð grein fyrir helstu fréttum frá útlöndum.
Aðalhöfundur bókarinnar er Bjarki Bjarnason. Aðalritstjóri Íslands í aldanna rás 1700–1799 er Nanna Rögnvaldardóttir og myndaritstjóri Margrét Tryggvadóttir. Gríðarleg vinna var lögð í að gera bókina sem best úr garði og eftirtaldir sérfræðingar rituðu yfirlitsgreinar hver á sínu fræðasviði: Anna Agnarsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson, Árni Björnsson, Einar Gunnar Pétursson, Gísli Gunnarsson , Guðbjörn Sigurmundsson, Guðjón Friðriksson, Guðlaugur Rúnar Guðmundsson, Gunnar Kristjánsson, Halldór Bjarnason, Magnús Rafnsson, Már Jónsson, Njáll Sigurðsson, Páll V. Bjarnason, Pétur Hafstein, Sigurður Pétursson, Svavar Sigmundsson, Þóra Kristjánsdóttir og Æsa Sigurjónsdóttir
Ísland í aldanna rás 1700–1799 er fróðlegt, skemmtilegt og alþýðlegt upplýsingarit. Ýtarlegar mynda-, nafna- og atriðisorðaskrár eru í bókinni og gera hana þar með mjög aðgengilega fyrir fróðleiksfúst fólk á öllum aldri. Bókin er í stóru broti og tæpar 600 blaðsíður að lengd.