Iréne
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2016 | 405 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2016 | 405 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 490 kr. |
Um bókina
Þaulskipulagður og kaldrifjaður raðmorðingi gengur laus og fjölmiðlar kalla hann „skáldsagnahöfundinn“ því að hvert morð virðist vera óður til sígildrar glæpasögu. Það gengur hvorki né rekur hjá Camille Verhæven sem rannsakar málið og fyrr en varir er einkalíf hans og barnshafandi eiginkonunnar, Iréne, orðið viðfangsefni þessarar hroðalegur „listgreinar“ morðingjans …
Iréne er háspennusaga – sú fyrsta í Verhæven-þríleiknum sem hefur aflað höfundinum vinsælda og frægðar um víða veröld. Önnur bókin í þeim flokki, Alex, kom út hérlendis í ársbyrjun 2015 og sló rækilega í gegn.
Pierre Lemaitre er margverðlaunaður höfundur og einn vinsælasti spennusagnameistari Frakka. Hann hlaut meðal annars hin virtu Goncourt-bókmenntaverðlaun árið 2013.
Friðrik Rafnsson þýddi.
4 umsagnir um Iréne
Árni Þór –
„Frumleg, hrottaleg og alls ekki fyrir viðkvæma. Glæpasaga í hæsta gæðaflokki … Þegar þú hefur tekið hana upp verður ekki aftur snúið.“
Daily Mail
Árni Þór –
„… pottþétt leið til að engjast í óvissu heila andvökunótt.“
Critiques Libres
Árni Þór –
„Þetta er alvöru höfundur!“
Egill Helgason
Árni Þór –
★ ★ ★ ★
„Iréne stendur svo sannarlega undir nafni sem spennu- og glæpasaga … þriðju bókarinnar verður beðið með mikilli eftirvæntingu.“
Steinþór Guðbjartsson / Morgunblaðið