Hvíti skugginn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2001 | 990 kr. | |||
Rafbók | 2017 | 490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2001 | 990 kr. | |||
Rafbók | 2017 | 490 kr. |
Um bókina
Hefur veraldarvefurinn tekið við hlutverki skriftastólsins? Hvaða áhrif hafa spádómar á fólk sem lifir og hrærist í heimi tækni og tölvusamskipta? Getur flug hrafna og táknmál spila kennt okkur að ráða í framtíðina? Slíkar spurningar leita á lesanda þessarar nýju skáldsögu Þórunnar Jörlu Valdimarsdóttur.
Hér segir af þeim Sólveigu, Kristrúnu og Jóhannesi sem leita aflausnar fyrir syndir fortíðarinnar. Við kynnumst þeim um leið og þau kynnast hvert öðru og í gang fer atburðarás þar sem líf þeirra þriggja fléttast saman á örlagaríkan hátt – og átökin varða líf og dauða.
Þórunn tekst á við samtímann og lýsir samskiptum fólks þar sem Netið skipar sífellt stærra hlutverk sem samskiptamiðill og tjáningarmáti. Um leið má lesa út úr verkinu ákveðið uppgjör við ’68-kynslóðina, horfna drauma hennar og hugsjónir.
1 umsögn um Hvíti skugginn
Bjarni Guðmarsson –
„… þarft og skemmtilegt innlegg í sífellt netvæddara samfélag.“
Rithringur.is