Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar

Útgefandi: Múlaþing
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 476 10.990 kr.

Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar

Útgefandi : Múlaþing

10.990 kr.

Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstað
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 476 10.990 kr.

Um bókina

Á Seyðisfirði er fjöldi gamalla timburhúsa sem kúra í skjóli hárra og formfagurra fjalla. Litrík, norskættuð timburhúsin frá fyrstu áratugum 20. aldarinnar gera Seyðisfjörð einstakan meðal bæja á Íslandi, en varðveisla þessara húsa hefur haft sitt að segja hvað varðar ásýnd og fegurð bæjarins.

Í Húsasögu Seyðisfjarðarkaupstaðar, sem kemur nú út í annað sinn, hefur verið safnað á einn stað ítarlegum upplýsingum um hús Seyðisfjarðar, tilurð þeirra og lífshlaup. Yfirferðin hefst við upphaf þéttbýlis, um 1870 og til ársins 1940. Húsin eru leiktjöld þeirrar margbrotnu sögu sem varð til á Seyðisfirði. Þegar gamalt hús hverfur, rýrir það ekki aðeins umhverfið, heldur er horfin ákveðin tilvísun í söguna og smám saman týnist sagan sjálf.

Bókin er því mikilvæg heimild um dýrmætan menningararf Seyðisfjarðar og hefur vakið almennan og verðskuldaðan áhuga á hinum eldri húsakosti, sem Seyðisfjörður státar af.

Tengdar bækur

Products not found

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is