Hundadagar
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2015 | 341 | 3.495 kr. | ||
Kilja | 2016 | 341 | 3.490 kr. | ||
Geisladiskur | 2015 | Mp3 | 3.790 kr. | ||
Rafbók | 2015 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2015 | 341 | 3.495 kr. | ||
Kilja | 2016 | 341 | 3.490 kr. | ||
Geisladiskur | 2015 | Mp3 | 3.790 kr. | ||
Rafbók | 2015 | 990 kr. |
Um bókina
Hundadagar er leiftrandi skemmtileg saga um stórhug, vandræði, bresti og breyskleika; um menn sem sigla með himinskautum og jafnvel í kringum hnöttinn; um ástina og ástríðurnar; um allt sem er hverfult og kvikt – um þræðina sem tengja saman tímana.
Frásögnin leiðir okkur á vit Jörundar hundadagakonungs, Jóns Steingrímssonar eldklerks og fleira fólks fyrri alda sem lesa má um í heimildum en varð líka efni í þjóðsögur sem lifa enn. Og sagan er ævintýraleg – og ævintýrin söguleg: eldgos á Íslandi kveikti byltingarbál í Frakklandi sem hafði svo aftur víðtæk áhrif annars staðar …
Kannski á fortíðin brýnna erindi við samtíðina en okkur grunar?
Hundadagar eru skáldsaga, meira að segja heimildaskáldsaga þar sem heimildir eru þó notaðar á afar frjálslegan hátt. Aðalheimildir sögunnar eru sjálfsævisögur aðalpersónanna, þeirra Jörgen Jörgensen eða Jörundar Hundadagakóngs og séra Jóns Steingrímssonar, síðan ótal aðrar heimildir sem sumar eru nefndar í sögunni en aðrar ekki. Af þeim sem ekki eru nefndar í sögunni eru fjölmargar greinar Önnu Agnarsdóttur um Jörund hundadagakonung og samskipti Englands og Íslands, Eldhugi Ragnars Arnalds, Mannkynssaga 1789 – 1848 eftir Jón Guðnason, The Age of Revolution eftir Eric Hobsbawm, VI, JÖRGEN JÖRGENSEN eftir Claus Ib Olsen, Fribytteren eftir Kurt Frederiksen og leikritið Eldklerkurinn eftir Pétur Eggerz sem ég bæði sá á sviði og hafði undir höndum eintak af og vísað er í á nokkrum stöðum og tekið orðrétt úr, til dæmis bréf séra Jóns á blaðsíðu 98. Um aðrar heimildar vísast í söguna sjálfa.
Einar Már Guðmundsson
ATH. Hljóðbókin er aðeins til á geisladiski (CD eða Mp3) sem er afhentur í pósti eða sóttur í Bókabúð Forlagsins. Hér má finna hljóðbækur okkar sem eru aðgengilegar rafrænt í streymi.
8 umsagnir um Hundadagar
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„… aldrei hefur maður skynjað jafn glöggt hvað [Jörundur Hundadagakonungur] er ótrúlegur náungi og í bók Einars … Einar Már miðlar þessu efni af mikilli frásagnagleði, fer vítt og breitt og er skemmtilega útúrdúrasamur.“
Egill Helgason / Eyjan.is
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Jörundur er Forrest Gump. Hann er allstaðar þar sem eitthvað merkilegt gerist á sínum tíma … Ógurlega skemmtilegt og viðburðaríkt … Allt sem er í þessari bók er skemmtilegt – þetta er eins og konfektkassi.“
Þorgeir Tryggvason / Kiljan
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Skáldsaga Einars Más Guðmundssonar er undursamleg og oft og tíðum stórskemmtileg blanda af feiknum og skringilegheitum, lygasögum, fyndnum útúrdúrum og afkáralegum smáatriðum.“
Jørgen Johansen / Berlingske Tidende
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Einar Már er hér í miklu frásagnarstuði og afraksturinn bráðskemmtilegur … lifandi, litrík og skemmtileg frásögn af afskaplega áhugaverðu fólki.“
Einar Falur Ingólfsson / Morgunblaðið
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„… sagan smellur saman sem ein heild. Ansi hreint hressandi, krassandi og skemmtileg heild, meira að segja. Einar Már er hér í essinu sínu … Ég held svei mér þá að Einar Már hafi ekki skrifað betri bók en þessa síðan hann setti síðasta punktinn í Engla alheimsins.“
Friðrika Benónýsdóttir / Fréttatíminn
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Einar Már er sögumaður af Guðs náð … meistaraverk!“
Politiken
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Gríðarlega vel skrifað, mjög skemmtilegt aflestrar. Lestrarunun. Áberandi hlýja gagnvart persónum. Næstum því hver einasta aukapersóna gæti verið aðalpersóna í bók. Ég hef svo gaman að því hvað hugmyndaríki Einars er mikið. Hann tengir saman persónur og tíma þar sem virðist engin hliðstæða … maður veit aldrei hvert hann fer … Honum tekst að vekja áhuga á öllu þessu fólki … Þetta er Einar í miklum ham!“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Mögnuð frásagnargleði … frásagnargleði Einars er mikil, svo mikil að áður en maður veit af er helgin liðin og bókin búin … Ótrúleg ævisaga … Hér er stórskemmtileg Íslandssaga á ferðinni og minnir mann á að eitt sinn þóttu sagnfræðirit hinn besti skemmtilestur …“
Valur Grettisson / DV