Hrímland: Skammdegisskuggar
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 490 | 3.490 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | ||
Rafbók | 2020 | 1.490 kr. |
Hrímland: Skammdegisskuggar
1.490 kr. – 3.490 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 490 | 3.490 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | ||
Rafbók | 2020 | 1.490 kr. |
Um bókina
Hrímland er undir hælnum á erlendu stórveldi og höfuðborgin Reykjavík er umlukin háum múrum. Kalmar mergsýgur þessa afskekktu nýlendu og nýtir seiðmagnið sem býr í jörðinni í eigin
þágu. Yfir borginni vomir Loftkastalinn, óhugnanlegt fljúgandi hervirki sem aldrei sefur. Miskunnarlaus aðskilnaðarstefna Trampes greifa hyglar mannfólki á kostnað annarra tegunda og huldufólk, marbendlar og náskárar mega lepja dauðann úr skel.
Sæmundur er metnaðarfullur galdramaður sem hefur verið rekinn úr Svartaskóla fyrir stórhættulegt fikt við svartagaldur. Róttæki huldufólksblendingurinn Garún vill losa Hrímland undan
kúgurunum og skapa réttlátara samfélag hvað sem það kostar. Og til þess að knýja fram byltinguna sem hún þráir leitar hún til Sæmundar – með ófyrirséðum afleiðingum.
Skammdegisskuggar er mögnuð og myrk samtímafurðusaga sem nálgast þjóðsagnaarfinn og Íslandssöguna á ferskan og afar frumlegan hátt. Sagan kom upphaflega út 2014 undir heitinu Hrímland en höfundurinn umskrifaði hana 2019 fyrir hið virta breska forlag Gollancz og er það sú útgáfa sem hér lítur dagsins ljós.
Alexander Dan hefur skipað sér sess sem einn helsti furðusagnahöfundur landsins. Áður hefur komið út eftir hann skáldsagan Vættir, auk þess sem hann semur söngtexta og þenur raddböndin í svartmálmshljómsveitinni Carpe Noctem.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 15 klukkustundir og 12 mínútur að lengd. Guðmundur Ingi Þorvaldsson les.
3 umsagnir um Hrímland: Skammdegisskuggar
embla –
„Eins og lesendur ættu að sjá vinnur Alexander Dan með athyglisverðum hætti úr menningararfinum og tekst að fella hann með skemmtilegum hætti inn í annars býsna hefðbundna, en alltaf áhugaverða, fantasíusögu.“
Einar Falur Ingólfsson / Morgunblaðið
Ester Ósk –
„Hér er eitthvað nýtt! Eins og Heimskringla og 1984 að deita í djöfullegri Reykjavík framtíðar. Gróbruggaður sagnaseiður með áfengu eftirbragði.“
Hallgrímur Helgason
Ester Ósk –
„Költbók áratugarins. Ógleymanleg sýn á Reykjavík, menningararfinn og þjóðina.“
Steinar Bragi