Höfundur Íslands
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2001 | 510 | 1.650 kr. | ||
Kilja | 2004 | 510 | 990 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2001 | 510 | 1.650 kr. | ||
Kilja | 2004 | 510 | 990 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Um bókina
Fremsti höfundur Íslands vaknar í brekku í afskekktum dal við það að lítill strákur potar í hann. Hvar er hann? Er hann lifandi eða dauður? Ekki minnkar undrun gamals manns þegar þungstígur bóndi, forn í skapi og illúðlegur, tekur hann í fangið og ber hann heim í sitt frumstæða kot, þar sem margt er kunnuglegt. Er hann staddur í eigin höfundarverki?
Höfundur Íslands (2001) eftir Hallgrím Helgason er margslungin og nýstárleg saga sem leiðir lesandann í ótrúlega ferð um íslenskan menningarheim liðinnar aldar. Um leið er tekist á við áleitnar spurningar um samband höfundar og verks, veruleika og skáldskapar, lífs og dauða. Þetta er hrífandi og ögrandi skáldsaga sem öðrum þræði er uppgjör við 20. öldina. Fyrir hana hlaut Hallgrímur Íslensku bókmenntaverðlaunin.
3 umsagnir um Höfundur Íslands
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Hér hafa orðið mikil tíðindi, bókmenntaviðburður. Þetta er makalaus bók, snilldarverk.“
Egill Helgason / Silfur Egils
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Höfundur Íslands er magnað skáldverk og hefur alla burði til að hrífa og hneyksla, rétt eins og forverar hennar snemma á síðustu öld. Sagan er í senn grípandi raunsæissaga af mannlegum örlögum og harmleik og fræðileg úttekt á öldinni. Hún er óræk sönnun þess að Hallgrímur Helgason er einhver frumlegasti og snjallasti höfundur sem við eigum.“
Jón Yngvi Jóhannsson / DV
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Dúndurmerkilegt skáldverk … þessi bók er gríðarlega skemmtileg og spennandi og fyndin og hræðilega, hræðilega sorgleg … algjörlega brilliant bókmenntir.“
Páll Baldvin Baldvinsson / Ísland í dag