Hilduleikur
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 225 | 5.490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 225 | 5.490 kr. |
Um bókina
Algjört skilyrði að viðkomandi hafi áhuga á skáldskap og ljóðum stóð í auglýsingu sem Hilda setti inn á Facebook ári eftir að Ragnar féll frá. Þessi tilmæli fældu frá leiðinlegt fólk sem kunni bara á ryksugu og afþurrkunarklút og ekki var hægt að tala við um neitt annað en vöruverð og veðurfar.
Sumir segja að þessi skáldsaga flokkist undir dystópíur. Í ekki allt of fjarlægri framtíð á Hilda í baráttu við öldrunariðnaðinn í líki fyrirtækisins Futura Eterna sem sér um skipulagningu ævikvöldsins.
Hún er ljóðelsk kona, telst vera komin á „aflifunaraldur“ en sættir sig ekki við þá skilgreiningu og atburðarásin tekur óvænta stefnu. Spennandi, harmræn og launfyndin framvinda með óvæntum endi kallast á við óvenjulegt pestarástand samtímans með gagnrýnum undirtón.
Hilduleikur er þriðja skáldsaga Hlínar Agnarsdóttur. Áður hafa komið út eftir hana Hátt uppi við Norðurbrún (2001) og Blómin frá Maó (2009). Að auki skrifaði hún bókina Að láta lífið rætast – ástarsaga aðstandanda (2003) sem var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðirita og bóka almenns efnis.