Hetjur Norðurslóða

Útgefandi: Qerndu
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 288 14.990 kr.
spinner

Hetjur Norðurslóða

Útgefandi : Qerndu

14.990 kr.

Hetjur Norðurslóða
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 288 14.990 kr.
spinner

Um bókina

Bókin er óður til grænlenska sleðahundsins og sambandsins sem myndast hefur milli manns og hunds í veiðimannasamfélaginu á Grænlandi. Ragnar Axelsson hefur ferðast um Grænland í um 40 ár og hefur á þeim árum safnað sögubrotum af harðri lífsbaráttu Grænlendinga í sambýli við besta vin mannsins.

Á Grænlandi er hundurinn svo ríkur þáttur í menningu og daglegu lífi að hann nánast rennur saman við samfélagið og náttúruna. Það tók Ragnar nokkur ár að átta sig fyllilega á mikilvægi hundsins í þessu samhengi og þessi bók er liður í að deila þeirri uppgötvun.

Hetjur Norðurslóða hefur að geyma sögur veiðimanna af hundum sínum en án sleðahundsins hefði grænlenskt samfélag sennilega ekki náð að þrífast um aldir. Í bókinni eru mikilfenglegar ljósmyndir af sambýli hunda og manna á tímum loftslags- og samfélagsbreytinga. Elsta myndin er tekin árið 1986 og sú yngsta rétt ársgömul og saman segja þær frá hrikalegum umskiptum í náttúru manna og hunda á Grænlandi. Á síðustu tíu árum hefur hundunum fækkað úr þrjátíu þúsund í ellefu þúsund.

Grænlenski sleðahundurinn er hin sanna hetja Norðurslóða. Í bókinni sýnir Ragnar Axelsson okkur hversu stórbrotið þetta dýr er og órjúfanlegt vináttusamband veiðimanna sem eiga allt sitt undir náttúrunni.

Tengdar bækur