Heimspeki fyrir þig
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2008 | 203 | 5.190 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2008 | 203 | 5.190 kr. |
Um bókina
Heimspeki fyrir þig eftir Ármann Halldórsson og Róbert Jack er kennslubók í heimspeki fyrir framhaldsskóla. Í bókinni eru ýmis viðfangsefni heimspekinnar, svo sem þekking, breytni og trú, tekin til lifandi umfjöllunar og koma fjölmargir merkir heimspekingar við sögu, t.a.m. Sókrates, Nietzsche og Singer. Bókin skiptist í 15 kafla og er 203 bls. að lengd.
Heimspeki fyrir þig er fengur fyrir allt áhugafólk um heimspeki.
Höfundar bókarinnar hafa kennt heimspeki á framhalds- og háskólastigi um árabil.
Þessi útgáfa bókarinnar er vefbók. Nú stendur nemendum og kennurum til boða að kaupa sér aðgang að námsefni sem er gagnvirkt og í stöðugri þróun. Vefbókarformið hentar afar vel fyrir kennsluefni vegna þess að mögulegt er að útskýra mismunandi námsefni og aðferðir með gagnvirkum hætti svo nemendur fá víðtækari skilning á efninu.
Vefbækur eru þess eðlis að notendur stofna sér aðgang og virkja hverja bók með svokölluðum veflykli sem þeir kaupa í vefverslun IÐNÚ.
Vefbókina má nálgast í gegnum svæðið vefbok.is