Heimför
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 416 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 416 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 490 kr. |
Um bókina
„Viltu vita hvað það er að vera veikgeðja? Að vera veikgeðja er að koma fram við fólk eins og maður eigi það. Að vera sterkur er að vita að sérhver manneskja er eign sjálfrar sín.“
Systrunum Effiu og Esi auðnaðist aldrei að hittast í lifanda lífi. Báðar fæddust þær í Afríku á átjándu öld þegar þrælasalan á Gullströndinni stóð sem hæst. Önnur varð eiginkona þrælakaupmanns í heimalandinu; hin var seld til Ameríku. Við fylgjum þeim og afkomendum þeirra, sjö kynslóðum, í blíðu og stríðu allt til dagsins í dag.
Yaa Gyasi sló rækilega í gegn með þessari fyrstu bók sinni. Hún dregur upp áhrifamikla mynd af örlögum heillar þjóðar þar sem fjölskyldur eiga stöðugt á hættu að tvístrast og glata öllu sem þær eiga. Stríð, þrældómur, fangelsun – og hörmungar í einkalífi – skilja ástvini að og setja mark sitt á tilveruna. En Heimför er líka saga um óbilandi baráttu í hörðum heimi, um það hvernig miskunnarlaus minningin um ánauð greypist inn í innstu sálarkima manneskjunnar og verður henni ævarandi fjötur − eða hvatning til betra lífs.
Ólöf Eldjárn þýddi.
4 umsagnir um Heimför
Árni Þór –
„Ógleymanleg … Heimför er eins og nútímasviðsetning á sögum sem hafa glatast og enginn hefur sagt – sögum um löngunina til að lifa af.“
Miami Herald
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Hrífandi, átakanleg.“
Wall Street Journal
Árni Þór –
★ ★ ★ ★
„Stórmerkileg frumraun … bókin hefur allt það sem góð skáldsaga getur haft til brunns að bera. Hún er hreyfiafl, tundurþráður uppljómunar, spennandi, skemmtileg, hugljúf, sár og tætandi, fyrir utan að vera feykilega vel skrifuð.“
Júlía Margrét Alexandersdóttir / Morgunblaðið
Árni Þór –
„Heillandi ættarsaga … einstaklega vel skrifuð og full af áhugaverðum persónum sem hægt er að láta sér þykja vænt um.“
Steingerður Steinarsdóttir / Vikan