Heiður
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2018 | 253 | 3.390 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.490 kr. |
Heiður
990 kr. – 3.390 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2018 | 253 | 3.390 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.490 kr. |
Um bókina
Heiður McCarron hefur ekki séð Dylan bróður sinn frá því að faðir þeirra fór með hann til Norður-Írlands sjö ára gamlan. Þegar hann hefur samband eftir tuttugu og átta ára þögn og biður um hjálp heldur hún af stað í þeirri von að fá svar við spurningunni sem alla tíð hefur brunnið á henni: Hvers vegna yfirgaf faðir þeirra friðsælt fjölskyldulífið í Reykjavík til að verja heiður fólksins síns í heimalandinu?
Heiður er áleitin saga um togstreituna á milli þess að berjast fyrir réttindum heillar þjóðar eða hamingju eigin fjölskyldu. Í bakgrunni eru átökin sem áratugum saman héldu samfélaginu á Norður-Írlandi í heljargreipum og gera kannski enn.
Sólveig Jónsdóttir er fædd árið 1982. Hún er stjórnmálafræðingur með meistaragráðu í þjóðernishyggju og þjóðernisátökum með áherslu á átökin á Norður-Írlandi. Eftir að hafa rekið veisluþjónustu í Skotlandi í þrjú ár fluttist hún aftur heim og hefur síðan starfað við blaðamennsku, kynningarmál og ýmiss konar ritstörf. Vorið 2012 sendi Sólveig frá sér frumraun sína, skáldsöguna Korter, sem einnig hefur komið út í þýskri og ítalskri þýðingu. Hún skrifaði leikritið The Sea Between Us árið 2013 sem var sýnt í Skotlandi sama ár.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.
Hljóðbókin er 6 klukkustundir og 46 mínútur að lengd. Álfrún Helga Örnólfsdóttir les.