Handan fyrirgefningar
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2017 | 300 | 2.490 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Handan fyrirgefningar
990 kr. – 2.490 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2017 | 300 | 2.490 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Um bókina
Þegar Þórdís Elva var 16 ára unglingur í Reykjavík var henni nauðgað af kærasta sínum, ástralska skiptinemanum Tom Stranger. Hún kærði aldrei ofbeldið sem hafði djúpstæð áhrif á alla hennar tilveru. Mörgum árum síðar skrifaði hún Tom, meðal annars til að fá hann til að axla ábyrgð á gjörðum sínum. Svar hans afvopnaði hana með einlægni sinni: skilyrðislaus játning og ósk um að gera upp fortíðina í sameiningu. Eftir átta ára bréfaskipti ákveða þau að mætast á miðri leið, í Suður-Afríku, landi sem á bæði sögu um átakanlegt ofbeldi og græðandi mátt fyrirgefningar.
Handan fyrirgefningar er áhrifarík og mögnuð saga af ferðalagi þvert yfir hnöttinn, frá ofbeldi til sátta. Bókin er skrifuð í samvinnu geranda og brotaþola sem er algert einsdæmi í heiminum enda kemur hún samtímis út í Englandi, Svíþjóð, Þýskalandi, Ástralíu og á Íslandi.
Í febrúar 2017 vöktu þau Þórdís Elva og Tom heimsathygli með TED-fyrirlestri um efni bókarinnar.
3 umsagnir um Handan fyrirgefningar
Árni Þór –
„Það er eitthvað alveg heillandi við hugrekkið og einurðina sem blasir við í frásögn bókarinnar.“
Þorgeir Tryggvason / Starafugl
Árni Þór –
„… ómetanlegt innlegg í samfélagsumræðu um kynbundið ofbeldi … frábær boðskapur sem boðar fyrst og fremst nýja von …“
Steingerður Steinsdóttir / Vikan
Árni Þór –
„… ný og byltingarkennd nálgun.“
Júlía Margrét Alexandersdóttir / Morgunblaðið