Grámosinn glóir
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 1989 | - | 510 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 1989 | - | 510 kr. |
Um bókina
Var þetta morð? Hver eru mörk ástarinnar? Hver er sekur? Og hvernig á ungur menntamaður með skáldadrauma, nýkominn úr laufskálum heimsmenningar, að dæma í þessu skelfilega máli í afskekktri byggð á Íslandi?
Morð í afdal. Ást í meinum. Sekt og sakleysi, heimsmenning og öræfi, skáldskapur, sannleikur, ofbeldi, vald: Grámosinn glóir eftir Thor Vilhjálmsson er margstefja saga og hljómmikil, en jafnframt auðlesin og sterk. Efni hennar er sótt í kunn íslensk sakamál frá síðari hluta 19. aldar, höfundur nýtir sér tækni spennusagna og ástarsagna, en öll lýtur frásögnin lögmálum skáldskapar. Fáir höfundar rita glæsilegri íslensku, og í þessu verki er einstæð orðgnótt Thors í þjónustu sannrar frásagnarlistar, þar sem söguþráðurinn er grípandi og persónur minnistæðar.
Engin íslensk skáldsaga síðari ára hefur hlotið aðrar eins viðtökur og Grámosinn glóir. Hún var ein af söluhæstu bókunum árið sem hún kom út, 1986, og hlaut hástemmt lof gagnrýnenda. Síðar átti hún eftir að færa höfundi sínum Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs og útgáfur á fjölmörgum þjóðtungum.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 9 klukkustundir og 26 mínútur að lengd. Jóhann Sigurðarson les.
3 umsagnir um Grámosinn glóir
Kristrun Hauksdottir –
„Dapurleg fegurð landslagsins á Íslandi, rétt eins og persónurnar, sem eru blanda af næmni og innri sársauka, gera þessa áhrifamiklu bók að skáldsögu sem er í senn átakanleg og heillandi.“
V.E., Femina
Kristrun Hauksdottir –
„Þegar maður les Vilhjálmsson hefur maður á tilfinningunni að maður standi frammi fyrir kraftmiklu ritverki, eins og það sé umlukið geislabaugi….Maður er líka furðu lostinn yfir byggingu verksins, sem er hárfín eins og raunar allt annað í bókinni sem magnar upp áhrifamátt þessa frábæra texta.“
Denis Gennart, La Libre Belgique
Kristrun Hauksdottir –
„Með tungutaki sem sameinar íslenzka frásagnarhefð og nútímaleg tjáningarform lýsir hann örlagaríkri ferð dómara um töfraþrungið landslag, þar sem glímt er við grundvallarspurningar tilverunnar um ábyrgð og sekt, um skáldskap og veruleika frá ótal sjónarhornum.“
Dómnefnd Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs