Gildran
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2015 | 344 | 3.495 kr. | ||
Kilja | 2015 | 344 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2015 | 990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2019 | App | 1.490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2015 | 344 | 3.495 kr. | ||
Kilja | 2015 | 344 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2015 | 990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2019 | App | 1.490 kr. |
Um bókina
Eftir harkalegan skilnað stendur Sonja uppi allslaus og ráðalaus. Það eina sem hún á er sonurinn Tómas sem hún fær ekki að hitta nema þegar pabba hans hentar. Í örvæntingu leiðist hún út í eiturlyfjasmygl; fyrir ágóðann vonast hún til að geta búið Tómasi gott heimili. Og Sonja er snjall smyglari og kemst upp með ótrúlegustu hluti. Allt þar til hún vekur athygli Braga, tollvarðar sem er að fara á eftirlaun.
Sonja heitir sjálfri sér því að hver smyglferð sé sú seinasta. Hana langar bara að vera með drengnum sínum og rækta brothætt ástarsamband við bankastarfsmanninn Öglu. En til þess þarf hún að sleppa úr gildrunni …
Lilja Sigurðardóttir hefur áður sent frá sér tvær glæpasögur, Spor og Fyrirgefningu, og árið 2014 hlaut hún Grímuverðlaun fyrir frumraun sína í leikritaskrifum, Stóru börnin, sem valið var leikrit ársins.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er átta klukkustundir og tuttugu mínútur að lengd. Elín Gunnarsdóttir les.
Hér má hlusta á sýnishorn úr fyrsta kafla hljóðbókarinnar:
6 umsagnir um Gildran
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Sagan er spennandi og söguþráðurinn vel ofinn, persónusköpun er skýr og vel tekst að byggja upp og halda spennu … Skemmtileg og spennandi glæpasaga og endirinn kemur á óvart.“
Brynhildur Björnsdóttir / Fréttablaðið
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Ekki oft sem maður les bók sem í er blússandi spenna frá upphafi til enda, en það gerðist svo sannarlega núna. Það er bókstaflega ekki dauður punktur í þessari lúmsku Gildru sem klemmir, bítur og slær!“
Vigdís Grímsdóttir
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„… skartar langflottasta og óvæntasta plott-tvisti vertíðarinnar.“
Þorgeir Tryggvason / Kjarninn
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Úr öllum þessum þráðum spinnur Lilja sterka sögu … Persónusköpun er með miklum ágætum … Virkilega hressandi lesning.“
Friðrika Benónýsdóttir / Fréttatiminn
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Lilju tekst mjög vel upp með að skapa hraða og spennandi framvindu, slíka að lesandinn er sjálfur fastur og kemst vart frá lestrinum … Gildran er spennandi glæpa-, ástar- og hrunsaga þar sem sterk flétta er borin uppi af stórgóðri frásagnartækni höfundar.“
Sólveig Ásta Sigurðardóttir / DV
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Hröð og óvænt … hvergi dauður punktur, það var ekki nokkur leið að hætta lestri hennar fyrr en hún var búin. Frábær spennusaga.“
Guðríður Haraldsdóttir / Vikan