Gerpla

Útgefandi: VH
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2010 333 2.290 kr.
spinner

Gerpla

Útgefandi : VH

2.290 kr.

Gerpla
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2010 333 2.290 kr.
spinner

Um bókina

Gerpla er eitt af stórvirkjum Halldórs Laxness. Sagan gerist á 11. öld þegar tveir vestfirskir garpar sverjast í fóstbræðralag að fornum sið.

Þorgeir Hávarsson er vígreifur kappi sem vill heldur herja en hokra. Þormóður Bessason er hæglátt skáld sem ann konum og hetjum meir; meðan hann situr heima í friði fer Þorgeir í víking og finnur sér kóng að berjast fyrir en lætur að lokum líf sitt. Þá er skáldið skyldugt að halda af stað og hefna fóstbróður síns og yrkja kóngi hans dýr kvæði.

Gerplu má kalla rangsnúna hetjuharmsögu. Hún er í sögualdarstíl en hetjurnar fallnar af stalli. Sagan er margræð og beitt háðsádeila á stríðsrekstur og hetjudýrkun að fornu og nýju – en ekki síður á þá sem fylgja í blindni leiðtoga eða hugsjón og fórna allri mennsku fyrir ímyndaða dýrð.

Gerpla kom fyrst út árið 1952, naut vinsælda frá upphafi og átti eflaust drjúgan þátt í að Halldór Laxness hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1955.

Þessi útgáfa sögunnar er með nútímastafsetningu.

Tengdar bækur

Products not found

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning