Geðveikt með köflum

Útgefandi: Bjartur
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2018 200 3.490 kr.
spinner
Rafbók 2018 1.490 kr.
spinner

Geðveikt með köflum

Útgefandi : Bjartur

1.490 kr.3.490 kr.

Geðveikt með köflum
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2018 200 3.490 kr.
spinner
Rafbók 2018 1.490 kr.
spinner

Um bókina

„Ég vakna einn upp á ókunnum stað og hef enga hugmynd um hvar ég er. Bætir ekki úr skák að ég er þungur og lyfjaður og á erfitt með að standa upp úr rúminu. Herbergið er dimmt.“

Þannig hefst einstæð frásögn Sigursteins Mássonar um lífshlaup sitt þar sem sannarlega hafa skipst á skin og skúrir. Sigursteinn var aðsópsmikill fréttamaður á sínum tíma og lét talsvert að sér kveða í fjölmiðlum. Þá hvarf hann af skjánum og af þjóðlífsvettvangi, en segir nú söguna af þeim hremmingum sem hann gekk í gegnum.

Af mikilli einlægni, hispursleysi en líka kankvísi fjallar Sigursteinn hér um andleg veikindi sín, hvernig hann sá og heyrði samsæri í hverju horni, um stríðið í Kosovo þar sem Sigursteinn var einna fyrstur vestrænna fréttamanna á staðinn, Guðmundar- og Geirfinnsmálin og þátt þeirra í veikindunum. Og þegar hann fór fram á við Davíð Oddsson forsætisráðherra að fá einkaþotu til að komast úr landi og fjármagn til uppihalds að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Geðveikt með köflum er áhrifamikil frásögn samtímamanns um veikindi og tvísýna baráttum um andlega heill og velferð, og hvernig honum tókst, með hjálp góðra manna og kvenna að ná tökum á geðsjúkdómi sínum.

Tengdar bækur