Gásagátan
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2021 | 1.490 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2021 | 1.490 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. |
Um bókina
Í júnímánuði árið 1222 leggur skip að landi á Gásum við Eyjafjörð. Um borð eru tveir bræður: Kolsveinn er tólf ára og kominn á aldur til að hefna föður síns, Kálfur er tveimur árum yngri og ferðast með dularfullan böggul. Á Gásum er líf og fjör en ekki eru allir komnir þangað í heiðarlegum tilgangi.
Gásagátan er spennandi saga sem gerist á þeim tíma þegar Gásir voru fjölmennasti kaupstaður landsins um nokkurra vikna skeið á hverju sumri. Höfundur studdist við sögulegar heimildir og niðurstöður fornleifauppgraftar við gerð sögunnar en um ævintýri bræðranna úr Grímsey er ritað í fyrsta sinn hér.
Brynhildur Þórarinsdóttir er dósent við Háskólann á Akureyri og hefur sent frá sér fjölmargar barnabækur. Hún hlaut Norrænu barnabókaverðlaunin fyrir endurritanir sínar á Njálu, Eglu og Laxdælu.
Hægt er að nálgast kennsluleiðbeiningar á kennarasvæði Forlagsins.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 3 klukkustundir og 31 mínúta að lengd. Brynhildur Þórarinsdóttir les.