Frida
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2009 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2009 | 990 kr. |
Um bókina
Litrík og stormasöm ævi Fridu Kahlo sem hneykslaði heiminn með taumlausu líferni sínu og stórbrotinni myndlist.
Mexíkóska listakonan Frida Kahlo hefur í tímans rás orðið að átrúnaðargoði kvenna um allan heim. Málverk hennar eru táknmyndir um sköpunarmátt og sigurvilja kvenna og ævi hennar er sveipuð goðsögulegum ljóma. Frá blautu barnsbeini var hún sérlunduð, eigingjörn og gædd óvenjulegum hæfileikum. Þrátt fyrir háskaleg veikindi og áföll hélt hún ótrauð áfram á listabrautinni og aflaði sér heimsfrægðar. Hún giftist öðrum frægum myndlistarmanni, Diego Rivera, og ástríðuþrungið hjónaband þeirra sem einkenndist af ást, afbrýðisemi og svikum hefur lengi vakið vangaveltur og örvað ímyndunaraflið.
Bókin Frida er snilldarlega skrifuð skáldævisaga, lögð í munn Cristinu, yngri systur Fridu, sem alla ævi stendur í skugga systur sinnar. Hún segir frá stormasömu hjónabandi Fridu og Diegos og dregur upp lifandi mynd af þessari áköfu og einstöku konu.
Þetta er hrífandi saga um stórbrotna einstaklinga og samkeppni milli systra sem báðar sækjast eftir ástum sama mannsins.
Helga Þórarinsdóttir þýddi bókina sem er prýdd fjölda ljósmynda úr lífi Fridu.