Framtíð mannkyns
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2021 | 370 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2021 | 3.890 kr. |
Framtíð mannkyns
3.490 kr. – 3.890 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2021 | 370 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2021 | 3.890 kr. |
Um bókina
Í þessari bók fjallar Kaku um sögu geimkönnunar í ljósi endurvakins áhuga á geimferðum nú þegar stórveldi jafnt sem auðjöfrar hafa sett stefnuna á Mars. Í líflegri frásögn sinni skírskotar Kaku meðal annars til skáldverka frá gullöld vísindaskáldskapar sem endurspeglað hafa framtíðarsýn mannsins. Hann sýnir hvernig ný tækni hefur breytt hugmyndum okkar um geiminn og gert raunhæft það sem áður þótti óhugsandi. Kaku heldur því fram að mannkynið geti þróað sjálfbæra siðmenningu í geimnum. En til að svo megi verða þurfi maðurinn að laga sig að breyttum aðstæðum og eftirláta háþróuðum þjörkum að finna ný heimkynni. Eftir milljarða ára þurfi afkomendur okkar hugsanlega að leita í annan alheim og yngri. Kaku fjallar um ferðalög framtíðarinnar milli stjarnanna og varpar jafnvel fram hugmyndum um ódauðleika mannsins.
Baldur Arnarson og dr. Gunnlaugur Björnsson þýddu bókina ásamt Sævari Helga Bragasyni.