Fornir tímar – Spor mannsins frá Laetoli til Reykjavíkur 4.000.000 f. Kr. til 1800 e. Kr.
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2016 | 384 | 6.290 kr. |
Fornir tímar – Spor mannsins frá Laetoli til Reykjavíkur 4.000.000 f. Kr. til 1800 e. Kr.
6.290 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2016 | 384 | 6.290 kr. |
Um bókina
Fornir tímar – Spor mannsins frá Laetoli til Reykjavíkur 4.000.000 f. Kr. til 1800 e. Kr. er grunnefni fyrir áfangann SAG 103 og fjallar um sögu mannkyns frá upphafi Evrópumenningarinnar og Íslendinga sérstaklega fram undir lok átjándu aldar. Bókin er sniðin sérstaklega að fyrirmælum aðalnámskrár. Hún gerir ráð fyrir að unnið sé með eftirfarandi sex efnisflokka sem mynda sex aðalhluta bókarinnar:
Fornöld að fornu og nýju
Menning miðalda
Ný heimsmynd í upphafi nýaldar
Líf í sveitum og borgum
Ríki og þegnar
Upplýsingin
Ennfremur er lögð áhersla á að fræða nemendur um eðli og aðferðir sögu og sagnfræði, bæði með sérstökum inngangskafla í bókinni og eins með kennarahandbók og verkefnasafni.
Kappkostað hefur verið að búa bókina vel úr garði. Hún er ríkulega skreytt myndefni, ljósmyndum af ýmsu tagi, kortum og töflum. Jafnframt fylgir ítarleg nafna- og hugtakaskrá, og myndaskrá.
Kennarahandbók má finna á kennarasvæði. Aðgangur að því er bundinn við lykilorð sem má nálgast með því að senda póst á netfangið forlagid@forlagid.is.