Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2002 | 1.810 kr. |
Um bókina
Flugur, fyrsta íslenska bókin sem einvörðungu hafði að geyma prósaljóð kom út árið 1922 og birtist nú íslenskum ljóðaunnendum aftur á nýrri öld. En eins og segir í inngangi Guðmundar Andra Thorssonar að þessari nýju útgáfu: „flugurnar hafa sveimað með æ háværara suði fram á þennan dag, ungt fólk hefur lesið þessa bók og hrifist af beittum smámyndum Jóns sem lausar eru við mælgi, tilgerð, mærð og önnur lýti sem algeng eru í þessu skáldskaparformi.“
Skáldinu, Jóni Thoroddsen, entist því miður ekki aldur til frekari landvinninga á ritvellinum, því að hann lést kornungur, aðeins tuttugu og sex ára gamall, en fagnaðarefni er að verk hans lifi áfram með þjóðinni.