Fjárhættuspilarinn

Útgefandi: Mál og menning
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2004 158 990 kr.
spinner

Fjárhættuspilarinn

Útgefandi : Mál og menning

990 kr.

Fjárhættuspilarinn
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2004 158 990 kr.
spinner

Um bókina

Fjodor Dostojevskí skrifaði Fjárhættuspilarann um svipað leyti og annað meistarastykki sitt, Glæp og refsingu. Fjárhættuspilarinn er á ýmsan hátt sjálfsævisögulegt verk, sprettur beint upp úr reynslu höfundarins sjálfs, þar sem Dostojevskí var forfallinn spilafíkill um árabil.

Hér er sögð saga af Alexei Ívanovitsj, ungum og lágt settum kennara í þjónustu fégráðugs hershöfðingja. Sagan gerist í borginni Roulettenburg, þar sem sá síðarnefndi er staddur ásamt föruneyti sínu til að stunda fjárhættuspil. Alexei reynir að vinna sig í álit innan hópsins en verður brátt heltekinn af spennu spilavítisins, þar sem menn sveiflast milli stórgróða og taps. Við sögu koma fjölskrúðugar persónur, einkum af kvenkyni, svo sem stjúpdóttir hershöfðingjans, Polína, og hin stórlynda Babúska, ríka amman sem birtist óvænt og setur allt úr skorðum. Setið er á svikráðum og enginn er annars bróðir þegar fúlgur fjár eru í sjónmáli.

Fjárhættuspilarinn er einhver frægasta og magnaðasta lýsing á áþján spilafíknarinnar sem til er. Sagan er borin uppi af meistaralegum lýsingum á innri togstreitu og hégómagirnd persónanna og hér takast á spaug og alvara; allt með þeim hætti sem lesendur þekkja vel úr öðrum meistaraverkum Dostojevskís.

Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi og ritar formála um höfundinn og verkið.

Tengdar bækur

Products not found

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning