Ensk-íslenska orðabókin
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2006 | 8.285 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2006 | 8.285 kr. |
Um bókina
Hér er komin verulega aukin og endurbætt útgáfa Ensk-íslenskrar skólaorðabókar sem kom fyrst út árið 1986. Við endurskoðunina var sérstök áhersla lögð á orðaforða á þeim sviðum þar sem mestar breytingar hafa orðið, svo sem í upplýsingatækni og viðskiptum, auk þess sem reynt var að gera daglegu máli sem best skil.
Hátt í 3000 nýjar þýðingar og merkingar auk fjölda nýrra skýringa og notkunardæma.
Fjöldi orða og orðasambanda úr daglegu máli samtímans.
Hátt í 40.000 uppflettiorð á 870 blaðsíðum.
Fleiri en 50.000 orðskýringar ásamt margvíslegum málfræðilegum upplýsingum og fróðleik um notkun, málsnið og merkingarsvið.
Orð sem eiga ekki beina samsvörun í íslensku skýrð á stuttan og hnitmiðaðan hátt.
Framburður gefinn á öllum uppflettiorðum með alþjóðlegu hljóðritunarkerfi.
Ritstjóri er Jón Skaptason.