Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Enginn sá hundinn
Útgefandi: MM
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 40 | 3.690 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 40 | 3.690 kr. |
Um bókina
Allt sem þeim áður fannst
alltaf svo gaman
var horfið og farið
þó færum við saman
því þau voru alltaf með álið í framan
…
Krakkarnir á Bakka verða himinlifandi þegar fjörugur hvolpur leynist í jólapakkanum. En um næstu jól eru gjafirnar enn meira spennandi svo að hundurinn gleymist. Þá þarf hann að grípa til sinna ráða!
Enginn sá hundinn er skemmtileg saga í bundnu máli sem foreldrar og börn munu njóta að lesa saman aftur og aftur.
Hafsteinn Hafsteinsson lærði myndskreytingar við Willem de Kooning Academy í Rotterdam. Enginn sá hundinn er fyrsta bók hans. Vísurnar eru eftir Bjarka Karlsson, höfund metsöluljóðabókarinnar Árleysi alda.
4 umsagnir um Enginn sá hundinn
Árni Þór –
„Ofsalega skemmtileg bók.“
Brynhildur Björnsdóttir / Kiljan
Árni Þór –
„Enginn sá hundinn er ekki bara litrík og fjörug saga af hundi sem fer í ævintýraleit, heldur líka ádeila á hegðun okkar nútímafólksins og mikilvæg hugvekja fyrir marga, bæði fullorðna og börn.“
María Bjarkadóttir / Bókmenntir.is
Árni Þór –
„Raunasaga hundsins sem engin sá er þegar öllu er á botninn hvolft mjög skemmtileg hugmynd og lumar á dálaglegum boðskap sem vert er að brýna fyrir börnum; áminning um að halda tengslum við raunveruleikann og njóta líðandi stundar. Því er full ástæða til að óska Hafsteini til hamingju með sitt fyrsta verk“
Arnaldur Máni Finnsson / DV
Árni Þór –
„Í sögu Hafsteins birtist skýr ádeila á snjalltækjavæðingu samtímans þar sem samverustundir víkja fyrir skjátíma. Myndefni Hafsteins er fjölbreytt … og oft á tíðum fyndið. Bjarki Karlsson semur texta bókarinnar, sem allur er í bundnu máli. Það gerir bókina heppilega til upplestrar, enda heillar rím nær undantekningarlaust unga lesendur.“
Silja Björk Huldudóttir / Morgunblaðið