Elskar mig, elskar mig ekki
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2010 | 205 | 2.690 kr. |
Elskar mig, elskar mig ekki
2.690 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2010 | 205 | 2.690 kr. |
Um bókina
„Svo kyssti hún mig. Bara svona allt í einu. Fyrst stuttan, feiminn koss sem hitti munnvikið á mér. Mér brá auðvitað og ég þurrkaði mér um munninn. Svo horfðumst við í augu og hlógum. Þetta var misheppnaður koss. Þegar við vorum hætt að hlæja tók hún um höfuðið á mér og dró mig að sér og stakk tungunni djúpt inn í munninn á mér.
Hún var heit og rök.“
Sögurnar í Elskar mig – elskar mig ekki fjalla allar um að vera ástfanginn, vera elskaður og þora að fylgja hjarta sínu. Sextán norrænir höfundar frá átta málsvæðum skrifa hér um ástina í allri sinni fjölbreytni fyrir lesendur frá 13 ára aldri. Meðal höfunda í bókinni eru Jónína Leósdóttir og Eiríkur Örn Norðdahl.
Sögurnar sextán eru allar skrifaðar sérstaklega fyrir þessa bók sem unnin var í samstarfi átta norrænna útgefenda: Milik á Grænlandi, Bókadeildarinnar í Færeyjum, Samlaget í Noregi, Art People í Danmörku, Opal í Svíþjóð, Tammi í Finnlandi, Davvi Girji á samíska málsvæðinu og Forlagsins á Íslandi.
Böðvar Guðmundsson íslenskaði sögur allra erlendu höfundanna. Sögur finnsku, samísku og grænlensku höfundanna voru þó fyrst þýddar á millimál. Norræna ráðherranefndin styrkti þýðingu sagnanna.
3 umsagnir um Elskar mig, elskar mig ekki
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Bókin geymir kraftmiklar sögur sem spanna ástina, allt frá þeirri sem særir til þeirrar sem gleður mest.”
Anneli Stenberg / Bibliotekstjänst
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Gullnáma sem sýnir á sannfærandi hátt líf unglinga í átta norrænum löndum … flott og sérlega gagnleg útgáfa fyrir elstu árganga grunnskólans.”
http://www.undervisere.dk
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Sögurnar eru allar mjög ólíkar en eiga það að mínu mati sameiginlegt að vera allar ótrúlega grípandi og krúttlegar. … Mæli með henni þessari!“
Kolbrún Skaftadóttir /