Eldgos 1913-2011
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2011 | 336 | 8.290 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2011 | 336 | 8.290 kr. |
Um bókina
Vandfundið er myndefni sem er jafn ægifagurt og það litaspil þegar jörð rifnar og jarðeldar leysast úr læðingi. Í þessari glæsilegu bók er að finna ljósmyndir af öllum þeim eldgosum 20. aldar og fyrstu gosum þeirrar 21. sem íslenskir ljósmyndarar hafa gert skil. Bókin lýsir stórkostlegu sjónarspili eldsumbrota á einstæðan hátt.
Verkinu er skipt í átta aðalkafla sem hver er helgaður einni gosstöð: Kröflu, Öskju, Grímsvötnum, Heklu, Kötlu, Eyjafjallajökli, Surtsey og Heimaey. Líflegir myndatextar Ara Trausta Guðmundssonar setja myndirnar í samhengi við eldvirkni og eldstöðvar en hann semur einnig inngang að hverjum kafla og fróðlegt yfirlit um sögu og eðli eldsumbrota og landmótunar á Íslandi.
Ragnar Th. Sigurðsson annaðist myndaritstjórn og myndvinnslu og leitaði í smiðju margra af helstu ljósmyndurum landsins.