Ég er svikari
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 397 | 4.290 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 397 | 4.290 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 990 kr. |
Um bókina
EF ÞETTA ER HEIMSENDIR – HVERJUM GETUR ÞÚ TREYST?
Dularfullar verur utan úr geimnum hafa ráðist á jörðina og virðast hafa sérstakan áhuga á að safna til sín 14–19 ára krökkum.
Amy býr í London með fjölskyldu sinni en þegar verurnar ráðast inn á heimili hennar og nema á brott bróður hennar og bestu vinkonu skilja þær hana eftir. Angistarfullir foreldrar leita allra leiða til að fá börnin sín aftur og Amy er skyndilega komin í lykilhlutverk. Hún gefur sig fram í veikri von um að geta bjargað málunum.
Svöl og öðruvísi vísindaskáldsaga þar sem hraði, ógn og átök koma fyrir á hverri síðu en líka vinátta, ástir og mikilvægi þess að trúa á sjálfan sig.
Sif Sigmarsdóttir er íslenskum lesendum að góðu kunn fyrir ungmennabækur sínar og fantasían Múrinn var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Ég er svikari kom út á ensku árið 2017 en Halla Sverrisdóttir hefur nú þýtt hana á íslensku.
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 10 klukkustundir og 13 mínútur að lengd. Sigríður Láretta Jónsdóttir les.
2 umsagnir um Ég er svikari
gudnord –
„… verulega góð bók. Hún talar beint inn í okkar samtíma, vekur lesandann til umhugsunar um mannleg gildi, siðferði, umhverfismál, lausnir og ólík sjónarhorn. Fléttan, sem mér þótti fáránleg fyrirfram, var svo sannfærandi að ég hafði á tilfinningunni eftir lesturinn að þetta gæti alveg komið fyrir.“
Halla Þórlaug Óskarsdóttir / Menningin á ruv.is
Arnar –
„Skemmtileg og spennandi saga um geimverur, mannverur, siðferði og tilfinningar.“
Brynhildur Björnsdóttir / Fréttablaðið