Dyngja

Útgefandi: JPV
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2022 App 3.990 kr.
spinner
Rafbók 2021 1.990 kr.
spinner
Innbundin 2021 227 3.990 kr.
spinner

Dyngja

Útgefandi : JPV

1.990 kr.3.990 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2022 App 3.990 kr.
spinner
Rafbók 2021 1.990 kr.
spinner
Innbundin 2021 227 3.990 kr.
spinner

Um bókina

Hvað leynist bak við bláan einkennisbúning og silkislæðu, sólbrúna húð og rauðlakkaðar neglur? Dauð rödd söguhetjunnar býður þér að kaupa tollfrjálsan varning og þegar þú afþakkar boðið heldur hún áfram ganginn með þennan klunnalega en vellyktandi vagn á undan sér. Hægt í átt að ljósinu og endalokum þeirrar undraverðu sögu sem nefnd hefur verið Dyngja. Hún hófst um miðbik 20. aldar á litlum bæ við rætur Ódáðahrauns og þaðan barst hún lengra inn í landið; frá hálendi Íslands út í geim og að lokum til tunglsins.

Sigrún Pálsdóttir lauk doktorsprófi í sagnfræði frá University of Oxford árið 2001 og hefur frá námslokum unnið við ýmsar rannsóknir og ritstjórn. Fyrri bækur hennar eru Þóra biskups og raunir íslenskrar embættismannastéttar (2010), Sigrún og Friðgeir. Ferðasaga (2013), Kompa (2016) og Delluferðin (2019). Bækurnar hafa verið tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Fjöruverðlaunanna, Menningarverðlauna DV og Viðurkenningar Hagþenkis. Delluferðin hlaut Bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins 2021.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafraHér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Esther Thalia Casey les.

Hér má hlusta á hljóðbrot úr bókinni:

5 umsagnir um Dyngja

  1. embla

    „Sigrún er frábær í sagnfræðinni og hún er greinilega líka frábær skáldsagnahöfundur. Hér heldur mikil hæfileikamanneskja á penna, nánast jafnvíg á bæði form.“
    Elín Hirst / Fréttablaðið

  2. embla

    Dyngja eftir Sigrúnu Pálsdóttur segir sögu bóndadóttur sem fædd er um miðbik 20. aldar. Theodóra/Teddý er gædd óvenjulegri stærðfræðigáfu. Heimur tækni og vísinda er karlaheimur, þar og þá, og konur eru ekki velkomnar í hann. Greiningarhæfileiki Teddýjar gerir henni að lokum kleift að snúa vonlausri stöðu sér í hag og tefla til sigurs. Dyngja er lágmælt saga með magnaðan undirtexta sem höfðar sterkt til réttlætiskenndar lesenda.“
    Umsögn dómnefndar Fjöruverðlaunanna

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

1 2 3 4 5

Tengdar bækur

Products not found

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is