Dularfulla styttan og drengurinn sem hvarf

Útgefandi: VH
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Rafbók 2020 1.490 kr.
spinner
Innbundin 2020 282 4.290 kr.
spinner
Hljóðbók - streymi 2020 App 2.990 kr.
spinner

Dularfulla styttan og drengurinn sem hvarf

Útgefandi : VH

1.490 kr.4.290 kr.

Dularfulla styttan og drengurinn sem hvarf
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Rafbók 2020 1.490 kr.
spinner
Innbundin 2020 282 4.290 kr.
spinner
Hljóðbók - streymi 2020 App 2.990 kr.
spinner

Um bókina

Glæsileg, rík og dularfull kona hefur keypt hús í Álftabæ en virðist engan áhuga hafa á neinum samskiptum við bæjarbúa. Dag einn hverfur ómetanleg froskstytta af heimili hennar. Á sama tíma virðist Doddi, bekkjarbróðir Millu, hafa gufað upp.

Á meðan áköf leit er gerð að Dodda reyna vinirnir Milla og Guðjón G. Georgsson að finna skýringuna á hvarfi hans, leysa ráðgátuna um froskstyttuna og komast að því hvort samhengi sé þar á milli. Þau flækjast þá inn í furðulegt glæpamál þar sem þau læra að skilja mikilvægi hjálpseminnar, gleðina sem felst í vináttunni og ofurkraftinn sem hugrekkið veitir.

Dularfulla styttan og drengurinn sem hvarf er önnur bók Snæbjörns Arngrímssonar og hlaut Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar 2020. Fyrri sagan um Millu og Guðjón G. Georgsson, Rannsóknin á leyndardómum Eyðihússins, fékk Íslensku barnabókaverðlaunin 2019 og var tilnefnd til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 5 klukkustundir og 50 mínútur að lengd. Margrét Örnólfsdóttir les.

6 umsagnir um Dularfulla styttan og drengurinn sem hvarf

  1. embla

    „Höfundur fer ákaflega létt með að véla lesandann inn í söguheiminn með lágstemmdum stíl og meitlaðri persónusköpun. Snæbjörn ber virðingu fyrir ungum lesendum og skilur margt eftir handa þeim til að ráða úr í textanum og lesa á milli línanna. En fyrir þá sem eru styttra á veg komnir standa fléttan og spennan fyllilega fyrir sínu og bókin á því erindi til margra. Dularfulla styttan og drengurinn sem hvarf er fágað verk sem skilur eftir löngun hjá lesanda að fylgja Millu og Guðjóni á vit nýrra ævintýra.“
    Umsögn dómnefndar / Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar

  2. embla

    „Snæbjörn Arngrímsson á eina bestu barnabók þessa árs, Dularfulla styttan og drengurinn sem hvarf, allavega hlýtur hún að vera sú best skrifaða.“
    Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

1 2 3 4 5

Tengdar bækur

Products not found

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is