Draumaráðningar A-Ö eftir Símon Jón Jóhannsson er nýtt og aðgengilegt uppflettirit um efni sem allir hafa áhuga á og leiða hugann að. Bókin er í senn fræðandi og skemmtileg og höfðar jafnt til yngri sem eldri lesenda er áhuga hafa á draumspeki. Og öll dreymir okkur eitthvað! Hér er að finna ráðningar á hátt í fjögur þúsund draumtáknum sem raðað er í stafrófsröð. Táknin eru af öllu tagi, ýmist úr daglegu lífi eða sjaldgæfari tákn. Þau taka til ólíkra sviða mannlífsins, allt frá skartgripum til samfélagsmiðla og kirkju til kynlífs. Þá eru í bókinni upplýsingar um fjölda mannanafna og merkingu þeirra í draumum. Símon Jón Jóhannsson þjóðfræðingur hefur ritað fjölda bóka um drauma og draumaráðningar sem notið hafa mikilla vinsælda. Ómissandi bók á hvert náttborð!