Draumar og veruleiki

Útgefandi: MM
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 568 8.490 kr.

Draumar og veruleiki

Útgefandi : MM

8.490 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 568 8.490 kr.

Um bókina

Vinstriflokkarnir settu mikinn svip á íslensk stjórnmál síðustu aldar. Hreyfing kommúnista fór að láta að sér kveða í upphafi þriðja áratugarins og allar götur síðan áttu róttæk sjónarmið öfluga talsmenn. Í þessu mikla ritverki Kjartans Ólafssonar er fjallað um lykilpersónur, átök og atburði í sögu Kommúnistaflokks Íslands og Sameiningarflokks alþýðu – Sósíalistaflokksins. Enginn núlifandi Íslendingur hefur betri innsýn í þessa sögu en Kjartan, en hann starfaði um árabil innan vinstrihreyfingarinnar og þekkti persónulega flesta þeirra sem hér koma við sögu. Bókina byggir hann á margvíslegum gögnum og leitar meðal annars í nýframkomnar heimildir úr íslenskum, rússneskum og þýskum skjalasöfnum.

Kjartan Ólafsson skipulagði fyrstu Keflavíkurgönguna árið 1960 og var einn stofnenda Samtaka hernámsandstæðinga sama ár. Hann starfaði í innsta hring Sósíalistaflokksins og Alþýðubandalagsins á sjöunda, áttunda og níunda áratugnum, sat um tíma á Alþingi og var um árabil ritstjóri Þjóðviljans.

2 umsagnir um Draumar og veruleiki

  1. embla

    „Verkið er yfirgripsmikið og varpar áhugaverðu ljósi á stjórnmála- og stéttasögu vinstri manna hér á landi á 20. öldinni af miklu innsæi og hreinskilni. Um er að ræða tímamótarit þar sem nýjar og áður óaðgengilegar heimildir eru nýttar.“
    Umsögn dómnefndar / Íslensku bókmenntaverðlaunin

  2. embla

    „Það er einnig næstum áþreifanlegt hversu vel Kjartan þekkir umfjöllunarefnið og þá menn sem fjallað er um.“
    Jón Þórisson / Fréttablaðið

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

1 2 3 4 5

Tengdar bækur

Products not found

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is