Draugsól: Þriggja heima saga #4
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 612 | 2.590 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Draugsól: Þriggja heima saga #4
990 kr. – 2.590 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 612 | 2.590 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Um bókina
Það hriktir í stoðum heimanna er innsiglin hverfa eitt af öðru og máttur Skugganna vex …
Vetur er skollinn á. Langt í norðri berjast Janarnir fyrir lífi sínu – hreindýrahjarðirnar týndar og vistir á þrotum. Í austri skelfur jörðin undan stærsta her sem heimurinn hefur séð og með honum ríður úlfariddarinn Breki, tilbúinn að berjast í nafni Temúls Bataars. Í suðri, í gróðursælum hlíðum Verdys, hlýtur Sirja þjálfun í listum sverðameistaranna og uppgötvar leyndardóma ófreskisins.
Hjá forna vitringnum Kymros lærði Ragnar að beisla mátt sinn áður en hann sneri bakinu við lærimeistara sínum. Nú liggja tættar líkamsleifar hans undir rústum hins svarta turns og senn mun draugsól rísa …
Draugsól er fjórða bókin í Þriggja heima sögu. Fyrri bækurnar, Hrafnsauga, Draumsverð og Ormstunga, hlutu frábærar viðtökur og fyrir þá fyrstu fengu höfundarnir meðal annars Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana.
3 umsagnir um Draugsól: Þriggja heima saga #4
Eldar –
„Þetta eru vel úthugsaðar bækur, spennandi og skemmtilegar.“
Steingerður Steinarsdóttir / Vikan
Elín Pálsdóttir –
„… fullvaxin fantasía fyrir allan aldur … Miðað við endi þessarar sögu er augljóst að það mun draga til tíðinda. Við bíðum í ofvæni.“
Friðrika Benónýsdóttir / Fréttablaðið (um Ormstungu)
Elín Pálsdóttir –
„… þeim Kjartani og Snæbirni hefur farið fram með hverri bókinni.“
Úlfhildur Dagsdóttir / bokmenntir.is (um Ormstungu)