Dimmuborgir
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2020 | 266 | 3.490 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2020 | App | 2.990 kr. | ||
Rafbók | 2020 | 1.490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2020 | 266 | 3.490 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2020 | App | 2.990 kr. | ||
Rafbók | 2020 | 1.490 kr. |
Um bókina
Bókmenntarýnirinn Elmar Arnarsson er búinn að loka sig af með kettinum sínum, stafla af jólabókum og kaffi í lítravís þegar honum berast óvænt nýjar upplýsingar um andlát besta vinar síns 25 árum fyrr. Elmar hefur alla tíð verið sannfærður um að Felix hafi verið myrtur og nú verður hann heltekinn af því að komast að sannleikanum. En leitin að honum á eftir að snúa tilveru þessa hlédræga manns gjörsamlega á hvolf.
Skáldsögur Óttars Norðfjörð hafa komið út víða erlendis og hlotið góðar viðtökur. Óttar skrifar auk þess sjónvarps- og kvikmyndahandrit, og er aðalhöfundur Brots, fyrstu íslensku sjónvarpsþáttaraðarinnar sem framleidd er af Netflix og sýnd um allan heim. Dimmuborgir er tíunda skáldsaga hans
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hjálmar Hjálmarsson les.
Hér má hlusta á fyrsta kafla hljóðbókarinnar:
4 umsagnir um Dimmuborgir
embla –
„Söguþráður bókarinnar er úthugsaður og ófyrirsjáanlegur og stendur bókin framar öðrum íslenskum spennubókum hvað það varðar. […] Fléttan
er þannig svo sterk að Dimmuborgir er virkilega skemmtileg, spennandi og auðlesin, tilvalið eintak fyrir sumarlestur.“
Ragnhildur Þrastardóttir / Morgunblaðið
embla –
„Dimmuborgir eftir Óttar Norðfjörð er vel skrifuð og skemmtilega úthugsuð skáldsaga. Fléttan gengur alveg upp.“
Steingerður Steinarsdóttir / Vikan
embla –
„Hún vekur forvitni, mann þyrstir í að vita meira og það var erfitt að slíta sig frá henni.“
Katrín Lilja / Lestrarklefinn
Ester Ósk –
„Besta bók Óttars, spennandi frá fyrstu blaðsíðu.“
Yrsa Sigurðardóttir