Dag einn í desember
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 470 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Dag einn í desember
990 kr. – 3.490 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 470 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Um bókina
Laurie trúir ekki á ást við fyrstu sýn því lífið er ekki bíómynd. En dag einn í desember, þegar hún er á heimleið með strætisvagni, kemur hún auga á hann í gegnum móðuna á rúðunni; hinn eina rétta. Hann mætir augnaráði hennar, andartakið er þrungið töfum – en svo ekur vagninn af stað. Laurie eyðir heilu ári í að leita hans – og finnur hann um næstu jól, þegar besta vinkona hennar kynnir nýja kærastann sinn fyrir henni.
Laurie reynir að láta lifið halda áfram og í tíu ár skarast leiðir þeirra Jacks gegnum vináttu og ástarsambönd, hjartasorgir og glötuð tækifæri, afneitun og erfiðleika. Saga þeirra er skemmtileg, hjartnæm og grípandi ástarsaga um örlög sem tvinnast saman og flækjast á ýmsa vegu á þyrnivegi hamingjunnar.
Josie Silver skrifar um rómantík og ást og skammast sín ekkert fyrir það. Hún kynntist manninum sínum þegar hún steig á fótinn á honum á afmælisdaginn hans og býr nú með honum í breskum smábæ ásamt tveimur ungum börnum þeirra og ketti. Dag einn í desember er fyrsta skáldsaga hennar og hefur þegar verið seld til margra landa.
Herdís Hübner þýddi.
2 umsagnir um Dag einn í desember
Elín Pálsdóttir –
„Náði tökum á mér og sleppti mér ekki. Hún kom mér til að hlæja, gráta og æpa á persónurnar. Einstaklega grípandi… ein af uppáhaldsbókunum mínum.“
Holly Martin
Elín Pálsdóttir –
„Eins og Love Actually í skáldsöguformi.“
The Bookseller