Burt og meir en bæjarleið – Dagbækur og persónuleg skrif Vesturheimsfara á síðari hluta 19. aldar

Útgefandi: Háskólaútgáfan
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2001 377 3.390 kr.

Burt og meir en bæjarleið – Dagbækur og persónuleg skrif Vesturheimsfara á síðari hluta 19. aldar

Útgefandi : Háskólaútgáfan

3.390 kr.

Burt-og-meir-er-bæjarleið
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2001 377 3.390 kr.

Um bókina

Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar nr. 5:

Sagnfræðingarnir Davíð Ólafsson og Sigurður Gylfi Magnússon tóku bókina saman og rita báðir ítarlega inngangskafla að henni. Í inngangi sínum fjallar Sigurður Gylfi um stöðu og þróun innflytjendarannsókna hér heima og erlendis og ræðir möguleika framhaldsrannsókna á því fræðasviði. Davíð ræðir í inngangi sínum uppbyggingu bókarinnar og valið á heimildamönnum, gildi persónulegra heimilda fyrir sagnfræðirannsóknir auk þess að setja sýnishornin í samhengi við þjóðfélagsþróun á síðari hluta nítjándu aldar.

Í raun má segja að Austur-Íslendingar og Vestur-Íslendingar séu viðfangsefni þessarar bókar. Vesturheimsferðirnar á síðari hluta nítjándu aldar höfðu í för með sér einhver mestu umskipti sem átt hafa sér stað í Íslandssögunni en þá tóku sig upp um 20  þúsund einstaklingar og fluttu í aðra  heimsálfu.

Í bókinni Burt – og meir en bæjarleið birtast valdir kaflar úr dagbókum nokkurra Íslendinga sem fluttu vestur um haf til Kanada og Bandaríkjanna á síðasta fjórðungi nítjándu aldar auk bréfa og sjálfsævisögukafla Vesturheimsfara. Í dagbækurnar skráðu þeir hluta af lífi sínu heima í gamla landinu, búferlaflutningana og reynslu innflytjandans í nýjum heimi. Í dagbókunum blandast saman skráningar á hversdagslegum athöfnum og stórviðburðum í lífi einstaklinganna.

Tengdar bækur

Products not found

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning