Bragð af ást
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2014 | 490 kr. | |||
Kilja | 2014 | 562 | 3.190 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2014 | 490 kr. | |||
Kilja | 2014 | 562 | 3.190 kr. |
Um bókina
Í hálft annað ár hefur Saffron Mackleroy tekist á við sorgina og söknuðinn eftir að Joel eiginmaður hennar var myrtur. Enginn veit hver varð honum að bana eða hvers vegna, nema ekkja hans. Og nú er morðinginn farinn að skrifa henni bréf. Til að bæta gráu ofan á svart er fjórtán ára dóttir hennar komin í ógöngur.
Á milli þess sem Saffron reynir að höndla veruleikann og vernda fjölskyldu sína leitar hún athvarfs í matargerð sem var líf og yndi Joels. Hún ákveður að ljúka við matreiðslubókina sem hann var að semja og reynir um leið að finna aftur bragðið af ástinni sem þau áttu saman – en ógnin færist sífellt nær.
Bragð af ást er hörkuspennandi og tilfinningaþrungin saga um söknuð og ást, leyndarmál og ógnandi óvissu.
Halla Sverrisdóttir þýddi.
3 umsagnir um Bragð af ást
Elín Pálsdóttir –
„Kraftmikil spennusaga … náði tökum á okkur strax í upphafi.“
Company
Elín Pálsdóttir –
„Þessa verðurðu að lesa.“
Heat
Elín Pálsdóttir –
„Höfundur er frábær sögumaður!“
Guðríður Haraldsdóttir / Vikan