Bonita Avenue

Útgefandi: JPV
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2015 549 3.390 kr.
spinner

Bonita Avenue

Útgefandi : JPV

3.390 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2015 549 3.390 kr.
spinner

Um bókina

Siem Sigerius er stærðfræðisnillingur, júdómeistari, djassáhugamaður; vinsæll háskólarektor. Heima snúast kona hans og tvær uppkomnar stjúpdætur í kringum hann eins og fylgihnettir, nýi tengdasonurinn sömuleiðis.

Fullkominn maður. Fullkomið líf.

Ef ekki væri fyrir soninn sem situr í fangelsi fyrir morð. Háskólastelpuna sem hann daðrar við. Og klámsíðurnar á netinu sem hann skoðar í laumi. En þegar rektorinn sér kunnuglegt andlit á slíkri síðu – óþægilega, hrikalega kunnuglegt – fara stoðir heimsins að riða. Bonita Avenue er ágeng fjölskyldusaga, eldfim og óútreiknanleg – saga um lygar og svik sem leiða til takmarkalausrar ógæfu, sturlunar og hryllings. Hollendingurinn Peter Buwalda er blaðamaður og ritstjóri. Bonita Avenue er fyrsta skáldsaga hans og hefur hlotið einstæðar viðtökur lesenda og gagnrýnenda heima og erlendis.

Ragna Sigurðardóttir þýddi.

„Kröftugt, slagkraftur í þessu.“
Egill Helgason / Kiljan

„Stór og mikil og svolítið æsandi fjölskyldusaga.“
Þorgeir Tryggvason / Kiljan

„… gerir þetta mjög skemmtilega.“
Friðrika Benónýsdóttir/Kiljan

***
„Í heild má segja það um verkið að það sé skemmtilegt flæði  í því, vel þýtt,  fantafín og sterk perónusköpun strax frá byrjun og kærkomin spenna sem fékk hárin til að rísa. Í bókinni eru grafískar lýsingar sem eru eflaust ekki fyrir viðkvæma en fyrir þá sem það þola má segja að Bonita Avenue sé býsna gott verk og vel uppbyggt“
Malín Brand/Morgunblaðið

„Bókmenntaviðburður … Ávanabindandi …“
Independent

„Stórbrotið evrópskt listaverk … Buwalda sprengir fjölskyldusöguna.“
Die Zeit

Tengdar bækur