Bókin um gleðina – varanleg hamingja í breytilegum heimi
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2018 | 407 | 3.390 kr. |
Bókin um gleðina – varanleg hamingja í breytilegum heimi
3.390 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2018 | 407 | 3.390 kr. |
Um bókina
Verð áður 3.390 kr.
Hvernig er hægt að finna gleði og frið þegar þjáningin í heiminum er svona mikil?
Vinirnir Dalai Lama og Desmond Tutu, vitrir og lífsreyndir öldungar, friðarverðlaunahafar Nóbels og andlegir leiðtogar milljóna manna um heim allan, hittust til að leita svara við þessari áleitnu spurningu – og miðla af reynslu sinni og boðskap. Þeir hafa báðir þurft að takast á við margvíslega örðugleika, kúgun, útlegð og ofsóknir. Þrátt fyrir það – eða kannski einmitt vegna þess – eru þeir uppfullir af lífsgleði, samhygð og glettni.
Bókin um gleðina er skrásett af Douglas Abrams, vini þeirra beggja og nánum samstarfsmanni Tutus erkibiskups, sem fylgdist með og tók þátt í öllum samskiptum vinanna þá ógleymanlegu daga sem þeir hittust í Dharamsala á Indlandi.
Magnea J. Matthíasdóttir þýddi.
2 umsagnir um Bókin um gleðina – varanleg hamingja í breytilegum heimi
Elín Pálsdóttir –
„Þessi bók er … sjaldgæfur fjársjóður fyrir þá sem vilja lifa lífi sínu til fullnustu, vera færir um að takast á við mótlæti og bregðast við því með því að draga andann djúpt og brosa.“
New York Journal of Books
Elín Pálsdóttir –
„Gneistandi, viturleg og bráðþörf gjöf til lesenda frá tveimur gagnmerkum andans meisturum, sem færir okkur von um að allir geti upplifað gleðina í lífinu, einnig þeir sem eiga við mikla örðugleika að stríða, og vísar beinan veg að því marki.“
Publishers Weekly