Blómið – saga um glæp
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 294 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 990 kr. |
Blómið – saga um glæp
990 kr. – 3.490 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 294 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 990 kr. |
Um bókina
Athafnamaðurinn Benedikt Valkoff vaknar um miðja nótt á heimili sínu við Sjafnargötu í Reykjavík og fer að brjóta saman þvott. Hann á afmæli, en dagurinn markar önnur tímamót. Þrjátíu og þremur árum fyrr hvarf litla systir hans meðan foreldrar þeirra voru að heiman. Enginn veit hvað af henni varð – eða hvað?
Það er komið að uppgjöri. Barnið sem hvarf er enn ljóslifandi; steinn í brjósti foreldra sinna og bróður, ráðgáta þeim sem síðar bættust við fjölskylduna. Að kvöldi þessa kyrra dags, eftir ferðalög í tíma og rúmi, rennur stund sannleikans upp.
Sölvi Björn Sigurðsson hefur sent frá sér athyglisverðar skáldsögur, ljóð og fræðirit, og verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Einnig hefur hann þýtt verk af ýmsu tagi. Sölvi er tvímælalaust einn af beittustu pennum sinnar kynslóðar og tekst hér á við samtímann í metnaðarfullu skáldverki sem er í senn breið raunsæissaga og fullt af furðum og ógn.
10 umsagnir um Blómið – saga um glæp
Árni Þór –
„Vel gert og djarflega … maður getur ekki annað en haldið áfram að lesa í Blóminu … Vísindasagan er á kantinum og rennur saman við sorgarsögu og áratuga gamalt fjölskyldudrama, óhugnaðurinn og furðurnar auka síðan á spennuna, draga fram hættulegan heim … Sölvi Björn Sigurðsson hefur sýnt að hann er þjóðhagur á flest bókmenntaform. Hann hefur frumsamið og þýtt, laust mál og bundið, notað gamlan efnivið og nýjan. Og allt þetta leikur í höndunum á honum.“
Steinunn Inga Óttarsdóttir / Víðsjá
Árni Þór –
„Strax í upphafi grípur Sölvi lesandann …“
Vilhjálmur A. Kjartansson / Morgunblaðið
Árni Þór –
„… vel skrifuð, skemmtilega flókin og spennandi.“
Guðríður Haraldsdóttir / Vikan
Árni Þór –
„Ég hef alltaf verið hrifinn af vel römmuðum frásögnum þar sem flakkað er um í rúmi og tíma út frá föstum frásagnarpunkti og Sölva tekst einstaklega vel að framkvæma rammafrásögn með ráðgátuívafi. … Styrkur bókarinnar liggur í frumlegri blöndu Sölva á vísindaskáldskap, ráðgátu-, harm- og ástarsögum og skemmtilega sveiflukenndu sambandi við raunveruleikann, allt frá fjarstæðukenndri fantasíu til nístandi sorgar sem fylgir því að missa barn.“
Már Másson Maack / Bókmenntir.is
Árni Þór –
„Meistaraverk … bók sem ekki hefur verið áður skrifuð hér á landi. Þetta er saga um okkar tíma og hættur sem mannkynið stendur frammi fyrir og verður spennandi að sjá hvernig Sölvi heldur áfram að vinna úr þessum efnivið. Mikill metnaður í þessari sögu og mikið undir. Skrifuð af miklum krafti og mikilli kunnáttu og maður fær ótal umhugsunarefni um leið og maður hlýtur að fletta og fletta.“
Hrafn Jökulsson
Árni Þór –
„Sölvi Björn Sigurðsson er einn af þessum höfundum sem maður hlakkar alltaf til að lesa nýja bók eftir. Bæði er hann fantagóður stílisti, hugmyndaauðgin er gríðarleg og oftast tekst honum að lauma ansi beittum húmor inn í bækur sínar … sagan fer af stað með miklum glæsibrag og óvæntum vendingum sem halda augum lesandans límdum við blaðsíðurnar … Maður hálfpartinn hrópar eins og æstur leikhúsgestur: meira, meira!“
Friðrika Benónýsdóttir / Fréttablaðið
Árni Þór –
“Mikil og breið skáldsaga … mjög spennandi!”
Jórunn Sigurðardóttir / Orð um bækur
Árni Þór –
“Æsispennandi!”
Haukur Ingvarsson
Árni Þór –
“Blómið er í senn falleg bók og umfram allt einhvern veginn nístandi. Maður leggur hana frá sér og heyrir í henni lengi á eftir.”
Eiríkur Örn Norðdahl / Starafugl
Árni Þór –
„Hreint mögnuð! Ofboðslega vel skrifuð. Mæli hiklaust með þessari bók. Hún er virkilega góð.“
Kolbeinn Óttarson Proppé / Mannlegi þátturinn, Rás 1