Blokkin á heimsenda
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2023 | 1.490 kr. | |||
Mjúk spjöld | 2020 | 256 | 3.890 kr. | ||
Rafbók | 2020 | 1.490 kr. |
Blokkin á heimsenda
1.490 kr. – 3.890 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2023 | 1.490 kr. | |||
Mjúk spjöld | 2020 | 256 | 3.890 kr. | ||
Rafbók | 2020 | 1.490 kr. |
Um bókina
Ævintýraleg saga af undarlegum stað!
Dröfn hefur aldrei hitt ömmu sína svo að óvænt ferðalag á afskekktu eyjuna hennar hljómar spennandi. En ferðin verður fljótlega dálítið skrýtin. Hvernig er hægt að þola svona takmarkað samband við umheiminn? Búa allir furðufuglarnir á eyjunni virkilega í einni blokk? Og er mögulegt að einhver í blokkinni vilji Dröfn og fjölskyldu hennar illt?
Blokkin á heimsenda hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2020 og Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2020 og var að mati dómnefndar bæði grípandi og gamansöm.
Arndís er meðal annars höfundur brókaflokksins um Nærbuxnaverksmiðjuna; Blokkin á heimsenda er fyrsta bók Huldu á íslensku en hún hefur áður gefið út verðlaunaðar unglingabækur í útlöndum.
Hægt er að lesa kafla úr bókinni hér.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 8 klukkustundir og 14 mínútur að lengd. Ólafía Hrönn Jónsdóttir les.
7 umsagnir um Blokkin á heimsenda
embla –
„Þó að umfjöllunarefnin í Blokkin á heimsenda séu hápólitísk – náttúruvernd, samfélag og stjórnarfar – er frásögnin öll út frá sjónarhóli barna. Dröfn er sterk, hugrökk og gagnrýnin á umhverfi sitt. Hún greinir breyskleika foreldra sinna og samfélagsins, sem gerir lestrarupplifunina einstaklega valdeflandi fyrir barn.“
Umsögn dómnefndar / Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
embla –
„Það má með sanni segja að andi og arfleifð Guðrúnar Helgadóttur svífi yfir. Horft er á samfélag hinna fullorðnu með augum barnsins. Það er ekki allt eins og best verður á kosið en með samstöðu og samhygð komast sögupersónur vel frá verki og vaxa að völdum og virðingu.“
Umsögn dómnefndar / Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur
embla –
„Frumleg og athyglisverð bók. Fyndin og áreynslulaus frásögn með snjöllum lausnum sem bera hugmyndaauðgi höfunda glöggt vitni. Mikilvægi samheldni og vináttu eru ákveðið meginstef í sögu sem deilir með sterkum hætti á neysluhyggju Vesturlanda. Loftslagsváin er alltumlykjandi en sterkum boðskapnum er aldrei þröngvað upp á lesandann heldur er hann borinn snyrtilega fram með húmor í aðalhlutverki.“
Umsögn dómnefndar / Íslensku bókmenntaverðlaunin
embla –
„Þetta er heillandi, skemmtileg, og vel skrifuð saga.“
Steingerður Steinarsdóttir / Vikan
embla –
„Mjög skemmtilegur stíll og afskaplega skemmtileg aðalpersóna […] Mjög skemmtileg bók.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan
embla –
„Spennandi og vel skrifuð barnabók sem sver sig í ætt við skandinavísku hefðina og hefur alla burði til að verða sígild.“
Brynhildur Björnsdóttir / Fréttablaðið
embla –
„Ég efast ekki um að fjölmörg börn eigi eftir að sökkva sér ofan í samfélagið í Blokkinni, hneyklast yfir hryssingslegri ömmu og aðlagast samfélaginu með Dröfn. Bókin er ævintýralega skemmtileg og húmorinn skín í gegn á hverri síðu.“
Katrín Lilja / Lestrarklefinn