Blóðberg
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2020 | 1.490 kr. | |||
Innbundin | 2020 | 174 | 3.490 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2020 | App | 3.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2020 | 1.490 kr. | |||
Innbundin | 2020 | 174 | 3.490 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2020 | App | 3.990 kr. |
Um bókina
Árið 1608 sver ung stúlka í Skagafirði, Þórdís Halldórsdóttir, eið um að hún sé hrein mey eftir að upp kemur kvittur um ástarsamband hennar við mág sinn en slíkt var dauðasök á tímum stóradóms. Fimm mánuðum síðar fæðir hún barn. Þórdís má lifa með ásökunum um blóðskömm og í trássi við landslög er henni gert að sæta pyntingum segi hún ekki til barnsföður síns. Á hverju ári ríður hún suður heiðar til að mæta fyrir Alþingi á Þingvöllum en heill áratugur líður þar til dómur er kveðinn upp.
Þóra Karítas Árnadóttir hefur starfað við skrif, leikhús og sjónvarpsþáttagerð. Árið 2015 sendi hún frá sér sannsöguna Mörk – saga mömmu sem hlaut góðar viðtökur lesenda. Blóðberg
er fyrsta skáldsaga hennar.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 5 klukkustundir að lengd. Höfundur les.
Hér má hlusta á brot úr fyrsta kafla hljóðbókarinnar:
5 umsagnir um Blóðberg
embla –
„Blóðberg er vel skrifuð og áhrifamikil bók um áhugaverðan tíma í Íslandssögunni en ekki síður áhugaverð saga konu sem var bæði ódæmigerð og dæmigerð fyrir þann tíma sem hún lifði.“
Brynhildur Björnsdóttir / Fréttablaðið
gudnord –
„Blóðberg er afskaplega vel og faglega unnin, fallega rituð af einstöku tilfinninganæmi og er jafnframt upplýsandi um mjög erfitt mál sem er því miður ekki einsdæmi…Gat varla lagt hana frá mér….“
Þórunn Lárusdóttir leikkona
Ester Ósk –
„Þóra Karítas býr yfir einstöku hugrekki þegar kemur að því að fjalla um hið óbærilega í mannlegri tilveru. Hér varpar hún ljósi á valdníðsluna sem hefur mótað okkur um aldir og er að mörgu leyti enn við lýði.“
Guðrún Eva Mínervudóttir
Ester Ósk –
„Rómantísk saga frá grimmum tímum. Seiður sviðsettur milli siðaskipta og einveldis.“
Þórunn Jarla Valdimarsdóttir
Ester Ósk –
„Þessi bók er perla.“
Vigdís Grímsdóttir