Barrtré á Íslandi
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2017 | 140 | 2.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2017 | 140 | 2.990 kr. |
Um bókina
Barrtré á Íslandi er þriðja bókin í ritröðinni. Í bókinni er fjallað um 5 ættkvíslir barrtrjáa og 34 tegundir sem eru í ræktun hér á landi. Það eru tegundir sem ýmist eru vel kunnar eða lítt reyndar en talið að geti þrifist við íslensk skilyrði.
Í bókinni er fjallað um uppruna tegundanna, afdrif þeirra á Íslandi, eðli og gerð, fjallað um fjölgun, erfðafræðilega þætti, umönnun, þrif og fuglana sem flögra í trjánum og nærast á afurðum þeirra, skordýr sem sækja á trén og sjúkdóma sem valda þeim skaða.
Allt eru þetta upplýsingar sem auðvelda lesandanum að átta sig á þeim fjársjóði sem úr er að velja þegar kemur að vali barrtrjáa í garðinn, sumarhúsalandið, í skjólbeltið eða skógræktina, upplýsingar sem fagmenn miðla af reynslu og þekkingu. Barrtrén hafa víða vaxið vel á Íslandi – fjórar tegundir hafa náð yfir 20 m hæð og keppa um sæti hæsta trés á landinu.
Bókina prýðir fjöldi litmynda úr íslenskum skógræktarsvæðum, görðum og náttúru.