Baráttan um brauðið
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2022 | - | 990 kr. | ||
Kilja | 2012 | 480 | 2.290 kr. | ||
Geisladiskur | 2017 | CD | 3.890 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 2.590 kr. |
Baráttan um brauðið
990 kr. – 3.890 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2022 | - | 990 kr. | ||
Kilja | 2012 | 480 | 2.290 kr. | ||
Geisladiskur | 2017 | CD | 3.890 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 2.590 kr. |
Um bókina
Fátæku fólki, fyrsta bindi æviminninga Tryggva Emilssonar verkamanns, var tekið með kostum og kynjum þegar það var endurútgefið árið 2010 og í Morgunblaðinu var fullyrt að bókin væri „ein merkasta og áhrifamesta ævisaga sem skrifuð var hér á landi á 20. öld“.
Baráttan um brauðið hefst árið 1920 þegar Tryggvi er sautján ára og fylgir honum í vinnumennsku, við búskaparhokur, gegnum illskeytta berkla og atvinnuleysi. Þegar íslensk alþýða rís upp gegn smánarkjörum sínum tekur Tryggvi þátt í þeirri baráttu af heilum hug. En aldrei gleymir hann því sem skipti hann mestu: ást á náttúrunni, kærleika til náungans og virðingu fyrir skáldskapnum.
Fátækt fólk og Baráttan um brauðið voru báðar tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.
ATH. Tvær gerðir hljóðbóka eru í boði fyrir þessa vöru. Hljóðbókin er til á geisladiski (CD eða Mp3) sem afhendist í pósti eða úr verslun en einnig er hægt að fá hljóðbók sem er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á beint í gegnum app Forlagsins eða vafra (Hljóðbók – App). Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er um 12 klukkustundir og 30 mínútur að lengd. Þórarinn Friðjónsson les.
2 umsagnir um Baráttan um brauðið
Elín Pálsdóttir –
„Hann hefur næmi fyrir ýmsum þeim smámunum og spaugilegum hliðum atvika sem gefa máli hans fyllingu … Æviminningar Tryggva Emilssonar verkamanns eru í sjálfu sér svo ágætur vitnisburður um merkilega kynslóð að torvelt verður að finna annan áhrifameiri.“
– Árni Bergmann / Þjóðviljinn
Elín Pálsdóttir –
„Minningar Tryggva Emilssonar veita yfirsýn mikillar sögu eins og einn einstaklingur úr hópi þúsundanna hefur sjálfur lifað hana og hún bregður um leið upp ótal skilríkum dæmum mannlífs og reynslu alþýðufólks og Iífskjara og örlaga þess …“
– Ólafur Jónsson / Dagblaðið