Augu Rigels
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2021 | 1.990 kr. | |||
Kilja | 2021 | 246 | 3.490 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2021 | 1.990 kr. | |||
Kilja | 2021 | 246 | 3.490 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. |
Um bókina
Augu Rigels er áhrifamikil saga um sterka og óvenjulega konu, framhald bókanna Hin ósýnilegu og Hvítt haf sem hafa fangað hug lesenda um víða veröld.
Það er sumar á Barrey, dúnninn er kominn í hús og eggin í tunnur, lífið er aftur fallið í fastar skorður eftir stríðið – eða hvað? Ingrid á einhverju ólokið og hún leggur af stað í langferð með tíu mánaða dóttur sína til að leita að föður hennar, Rússanum Alexander, sem ætlaði að flýja yfir fjöllin til Svíþjóðar um hávetur. Hún rekur slóð hans en hefur stöðugt á tilfinningunni að hún fái ekki að heyra allan sannleikann og að stríðinu sé ef til vill ekki endanlega lokið.
Fyrir Hin ósýnilegu hlaut Roy Jacobsen tilnefningu til hinna virtu Man Booker-bókmenntaverðlauna, fyrstur norskra rithöfunda. Hann hefur jafnframt verið tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í tvígang.
Jón St. Kristjánsson þýddi.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Bókin er 6 klukkustundir og 16 mínútur að lengd. Berglind Jónsdóttir les.
Hér má hlusta á brot úr fyrsta kafla hljóðbókarinnar:
5 umsagnir um Augu Rigels
Elín Pálsdóttir –
„Yndisleg og ljúfsár saga. Roy Jacobsen hefur tekist vel upp enn og aftur.“
BOK 365
Elín Pálsdóttir –
„… meitluð og vel uppbyggð skáldsaga.“
Dagsavisen
Elín Pálsdóttir –
„Samanlagt eru bækurnar þrjár minnisvarði um norðurnorska strandbúa í brauðstriti og stríði … Heillandi og áhugaverð mynd af Noregi sumarið eftir stríðslok.“
Adresseavisen
Elín Pálsdóttir –
„Þegar ég lagði bókina frá mér hugsaði ég eins og alltaf þegar ég hef lesið bók eftir Jacobsen: Mikið óskaplega er hann góður höfundur.“
Dagbladet
Elín Pálsdóttir –
„… sindrandi lýsing á lífinu eftir stríðið, lífinu eftir hörmungarnar, lífinu eftir ástina … óvenjulega heillandi frásögn …“
VG