Ár kattarins
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2012 | 300 | 1.755 kr. | ||
Kilja | 2012 | 300 | 3.310 kr. | ||
Geisladiskur | 2012 | Mp3 | 1.090 kr. | ||
Rafbók | 2012 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2012 | 300 | 1.755 kr. | ||
Kilja | 2012 | 300 | 3.310 kr. | ||
Geisladiskur | 2012 | Mp3 | 1.090 kr. | ||
Rafbók | 2012 | 990 kr. |
Um bókina
Hver er veruleikinn bakvið lífshættulega árás fyrir utan skemmtistað? Eða óhugnanlegan hrekk í brúðkaupi sem síðan breytist í martröð? Hver sendir Einari klúr sms-skeyti? Og hvers konar pólitískum skollaleik er beitt í baráttunni um framtíð Síðdegisblaðsins? Blikur eru á lofti í samfélagi þar sem mennskan og illskan takast á. Og ráðgáturnar hrannast upp í lífi og starfi Einars blaðamanns. Ekki er allt sem sýnist – og kannski ekkert.
Árni Þórarinsson hefur einkar næma sýn á samtíma okkar, í senn íróníska og óvægna. Bækur hans hafa notið mikilla vinsælda og verið þýddar á fjölda tungumála. Ár kattarins er enn ein perlan í mergjaðri glæpasagnafléttu um blaðamanninn Einar og sú áttunda í röðinni. Fyrsta skáldsaga Árna, Nóttin hefur þúsund augu, kom út 1998. Tími nornarinnar sem kom út 2005 var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
ATH. Hljóðbókin er aðeins til á geisladiski (CD eða Mp3) sem er afhentur í pósti eða sóttur í Bókabúð Forlagsins. Hér má finna hljóðbækur okkar sem eru aðgengilegar rafrænt í streymi.
4 umsagnir um Ár kattarins
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„… Best lukkaða bók Árna síðan Tími nornarinnar kom út. … Óvægin samfélagsádeila og óþægilegar spurningar í vel fléttaðri spennusögu sem kemur við kaun lesandans.“
Friðrika Benónýsdóttir / Fréttablaðið
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Þetta er góð bók … fínn krimmi.“
Þorgeir Tryggvason / Virkir morgnar, Rás 2
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Velfléttaður, þéttur og fínn krimmi.“
Hallgrímur Thorsteinsson / Vikulokin, Rás 1.
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Árni lýsir vel togstreitunni samfélaginu. … Textinn er lipur, fyndinn köflum og sagan líður áfram. Trúverðug saga og stundum má ætla að um frásögn af raunverulegum atburðum sé að ræða. Þetta er góð bók hjá Árna. Stíllinn er afslappaður og eðlilegur … hinn besti krimmi.“
Steinþór Guðbjartsson / Morgunblaðið