Áður en ég dey
Now go add some variable products!
Now go add some variable products!
Um bókina
Lífið tekur enda. Það vita allir. En hin sextán ára gamla Tessa, sem er langt leidd af ólæknandi sjúkdómi og á aðeins fáeina mánuði ólifaða, hugsar meira um dauðann en flestir jafnaldrar hennar. Hún ætlar að nota tímann vel og setur saman lista yfir allt sem hún vill gera áður en hún deyr. Fyrsta atriðið á listanum er að sofa hjá – og það verður að gerast strax!
En það getur verið erfitt að fá það sem maður vill. Og oft er það sem maður vill alls ekki það sem maður þarfnast mest. Til að flækja málið enn frekar reynast óvæntir hlutir allt í einu skipta mestu máli.
Áður en ég dey er í senn einstæður óður til lífsins og óvægin frásögn af því þegar lífið fjarar út. Bókin hefur sópað að sér verðlaunum og notið mikilla vinsælda víða um heim.
2 umsagnir um Áður en ég dey
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Algerlega sumarbókin í ár !!! Ef þig langar í virkilega góða sögu þá lestu þessa bók, hún lætur engan ósnortinn.
…tárin láku niður í stríðum straumi.“
Kolbrún Ósk Skaftadóttir / Eymundsson
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Snilldarbók um lífið og dauðann … Þessi bók er afar sterk, vel skrifuð og ógleymanleg, bara frábær.“
Guðríður Haraldsdóttir / Vikan